Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar 2018 er komin út
Árið 2018 vann Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hörðum höndum að því að aðstoða og koma á tengslum fræðsluaðila og fyrirtækja. Á árinu var samið við um 70 fyrirtæki í ferðaþjónustu með tæplega 2.000 starfsmenn. Tengt því verkefni er þróun starfsfólks Hæfnisetursins á rafrænum tækjum til að nota í fræðslu, meðal annars með vinnslu fagorðalista, þjálfunarefnis og smáforrita. […]
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar tekur þátt í aðalfundi SAF
Aðalfundur SAF fer fram á Húsavík í dag og af því tilefni er ársskýrsla samtakanna 2018-2019 komin út. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar er á staðnum og kynnir starfsemina fyrir gestum aðalfundarins. Heppnir gestir sem heimsækja kynningarbás Hæfnisetursins geta nælt sér í vinning. Við óskum SAF til hamingju með glæsilega ársskýrslu. Hér má nálgast ársskýrslu SAF
„Er hægt að hafa það betra?“
Góður rómur var gerður að erindum fyrirlesara Á Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem fram fór á Akureyri í gær sagði Sigrún Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Höldi, frá góðu samstarfi við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SÍMEY en Höldur tekur þátt í tilraunaverkefninu Fræðsla í ferðaþjónustu. Sigrún sagði kostina við samstarfið vera þá að hún fengi með því sérþekkingu, aðra sýn, […]
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar á Akureyri – BEIN ÚTSENDING
Bein útsending frá fundaröðinni Okkar bestu hliðar – Menntamorgnar ferðaþjónustunnar sem fram fer miðvikudaginn 13. mars á Akureyri Útsending hefst kl. 9.00, miðvikudaginn 13. mars 2019. MENNTAMORGUN – BEIN ÚTSENDING
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi og Hæfnisetur ferðaþjónustunnar gera með sér samstarfssamning
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, fyrir hönd Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, og Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi hafa undirritað samstarfssamning um heimsóknir og fræðslu til fyrirtækja í ferðaþjónustu. Er Símenntunarmiðstöðin þar með komin í hóp átta fræðsluaðila sem vinna með Hæfnisetrinu að því að auka hæfni starfsfólks ferðaþjónustunnar. Við bjóðum Símenntunarmiðstöðina á Vesturlandi velkomna til samstarfs. Ferðaþjónustufyrirtækjum á svæðinu er bent á […]
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar haldinn á Akureyri – skráning
Næsti fundur í fundaröðinni Okkar bestu hliðar – menntamorgnar ferðaþjónustunnar verður haldinn á Akureyri miðvikudaginn 13. mars kl. 8.30 – 10.30 í húsnæði SÍMEY, Þórsstíg 4. Fundarstjóri er Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu. Dagskrá: Virðisauki þekkingar Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu Verkfærakista Hæfniseturs ferðaþjónustunnar Hildur Betty Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar Kynning á fagorðasafni ferðaþjónustunnar María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF Kynning á Veistu Appinu […]
Þekkingarnet Þingeyinga og Hæfnisetur ferðaþjónustunnar gera með sér samstarfssamning
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, fyrir hönd Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, og Þekkingarnet Þingeyinga hafa undirritað samstarfssamning um heimsóknir og fræðslu til fyrirtækja í ferðaþjónustu. Starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga er Þingeyjarsýslur, frá Vaðlaheiði að Langanesi. Þar er að finna fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki, til dæmis á Húsavík og í Mývatnssveit en einnig víða annars staðar. Ferðaþjónustufyrirtækjum á svæðinu er bent á að hafa […]
Fyrirtæki í ferðaþjónustu hljóta Menntaverðlaun atvinnulífsins
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt við hátíðlega athöfn á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu í gær. Höldur á Akureyri er Menntafyrirtæki ársins og Friðheimar í Bláskógabyggð er Menntasproti ársins. Menntaverðlaun atvinnulífsins eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði fræðslu- og menntamála. Höldur og Friðheimar hafa tekið þátt í tilraunaverkefninu Fræðsla í ferðaþjónustu […]
Íslensk ferðaþjónusta keppi í gæðum
Á Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem fram fór í Húsi atvinnulífsins í gær sagði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), að mikilvægt væri að fyrirtæki fjárfestu í hæfni starfsmanna og þar með meiri fagmennsku. Þetta er stóri möguleikinn okkar til þess að bæta samkepnishæfni ferðaþjónustunnar á Íslandi, það er að bæta gæðin, bæta hæfni starfsfólksins og […]
Fagorðalisti ferðaþjónustunnar er kominn út
Til að efla góða samvinnu og sameiginlegan skilning starfsfólks í ferðaþjónustu hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar tekið saman lista yfir algeng orð sem notuð eru í greininni. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku og eru aðgengilegir á prentuðum veggspjöldum og á heimasíðu Hæfnisetursins. Þar má jafnframt heyra framburð orðanna á íslensku og senda inn […]
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar – BEIN ÚTSENDING
Bein útsending verður frá fyrsta fundinum í fundarröðinni Okkar bestu hliðar – menntamorgnar ferðaþjónustunnar sem fram fer fimmtudaginn 31. janúar kl. 8.30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Hér er hægt að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum: Útsending hefst kl. 8.30, fimmtudaginn 31. janúar 2019. MENNTAMORGUNN – BEIN ÚTSENDING
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar – Okkar bestu hliðar
Fyrsti fundurinn verður fimmtudaginn 31. janúar kl. 8.30 – 10.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 Dagskrá: Verkfærakista Hæfniseturs ferðaþjónustunnar – Hildur Hrönn Oddsdóttir, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins Kynning á fagorðasafni ferðaþjónustunnar – María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF Hvernig gengur með íslenskuna? – Stefán Karl Snorrason, starfsþróunar- og gæðastjóri hjá Íslandshótelum og Marina Isabel Pimenta de Quintanilha […]
Höldur semur við Hæfnisetrið um notkun á Veistu hugbúnaðinum
Höldur hefur samið við Hæfnisetrið um að taka til notkunar Veistu smáforritið. Veistu smáforritið gefur möguleika á að útbúa skemtilega spurningaleiki sem styðja við fræðslu. Spurningaleikjunum er deilt með starfsfólki sem getur svarað þeim í snjalltækjum. Hæfnisetrið hefur þróað grunnsöfn spurninga sem fyrirtæki geta fengið aðgang að. Nánar um Veistu má finna hér
Mannamót 2019 í Kórnum í Kópavogi
Markaðsstofur landshlutanna, í samvinnu við flugfélagið Erni og Isavia, setja upp vinnufundinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín fimmtudaginn 17. janúar 2019 kl. 12:00 – 17:00 í Kórnum í Kópavogi. Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á […]
Jólakveðja
Aukin hæfni í ferðaþjónustu – betri upplifun gesta
Adventure Hótel Geirland, Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Fræðslunet Suðurlands hafa gert með sér samning um fræðslu og þjálfun fyrir starfsfólk hótelsins. Verkefnið fer af stað í janúar 2019. Adventure Hótel Geirland er 40 herbergja sveitahótel, með veitingahúsi, um 2 km frá Kirkjubæjarklaustri. Hótelið er vel staðsett á suðurlandi nálægt mörgum af helstu perlum suðurlands t.d. Mýrdalsjökli, […]