Fagorðalistar

Um er að ræða orðasafn algengra orða og frasa sem notaðir eru í ferðaþjónustunni og geta auðveldað samskipti á vinnustað.

Fagorðalistar ferðaþjónustunnar eru fyrir móttöku, þrif og umgengni, eldhús, skoðunarferðir og akstur, afþreyingu og þjónustu í sal. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum.

Fiskabúrið geymir safn heita yfir matfiska sem notaðir eru í réttum veitingastaða með myndum eftir Jón Baldur Hlíðberg. Fiskabúrið er á fjórum tungumálum.

Hlusta má á framburð orðanna á íslensku.

Fagorðalisti ferðaþjónustunnar

Fiskabúrið

Veggspjöld

Orðalisti
Þjónusta
Afþreying
Þrif
ELDHÚS
Móttaka
Fiskabúrið

hvað?

  • Listi yfir algeng orð og frasa sem notuð eru í ferðaþjónustu.
  • Til á íslensku, ensku og pólsku.
  • Hlusta má á framburð orðanna.

Hvar?

Hægt að nota/æfa hvar og hvenær sem er, bæði í síma og tölvu.

Af hverju?

  • Til að efla góða samvinnu og sameiginlegan skilning starfsfólks í ferðaþjónustu.
  • Til að veita afbragðs þjónustu.

Fyrir hverja?

  • Stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja sem vilja hvetja sitt starfsfólk til góðra verka.
  • Starfsfólk í ferðaþjónustu sem talar litla ensku og/eða íslensku.
  • Viðskiptavini í samskiptum við erlent starfsfólk.

Hvað tekur langan tíma að fara í gegnum efnið?

Allt eftir því hvað hentar best. Hægt er að æfa sig heima eða í vinnunni, á kaffihúsi eða hvar sem er. Starfsfólk getur líka gripið til fagorðalistans þegar þörf er á í vinnunni, t.d í símum sínum.

Hver er ávinningurinn?

Aukin gæði, færri kvartanir, meiri starfsánægja, meiri ánægja gesta.

Skref fyrir skref

  1. Finndu þitt svið, þú getur valið orðalista fyrir móttöku, þrif, umgengni, eldhús, afþreyingu, skoðunarferðir og akstur og algenga frasa
  2. Finndu orð sem þú vilt læra eða þarft að nota og hlustaðu á framburðinn.
  3. Æfðu þig að segja orðin sem oftast og líka fyrir framan viðskiptavinina.

Hafðu samband