Menntamorgunn ferðaþjónustunnar haldinn á Akureyri – skráning

Næsti fundur í fundaröðinni Okkar bestu hliðar – menntamorgnar ferðaþjónustunnar verður haldinn á Akureyri miðvikudaginn 13. mars kl. 8.30 – 10.30 í húsnæði SÍMEY, Þórsstíg 4.

Fundarstjóri er Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu.

Dagskrá:

Virðisauki þekkingar
Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu

Verkfærakista Hæfniseturs ferðaþjónustunnar
Hildur Betty Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar

Kynning á fagorðasafni ferðaþjónustunnar
María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF

Kynning á Veistu Appinu – Hvernig gengur með rafræna þjálfun og fræðslu?
Hildur Oddsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar og Sigrún Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Höldi

Vakinn – Grunnur að góðri þjónustu
Elías Bj. Gíslason forstöðumaður

Þjálfun í gestrisni
Verkefni með þátttöku fundargesta

Morgunhressing frá kl. 8.30 til 9.00 – allir velkomnir!

[maxbutton id=“1″ url=“https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfB-GC4nz6EktmmQIteRIJWVBZ3Gkdi9CYBTobykdlq15zOWg/viewform“ text=“Skráning“ ]

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF standa fyrir fundaröðinni.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á heimasíðu Hæfnisetursins.

 

Hafðu samband