Hvers vegna að innleiða sjálfbærnistefnu?

  • Sjálfbærnistefna hjálpar til við að vernda íslenska náttúru og tryggja við að hún haldist ósnortin fyrir komandi kynslóðir. 
  • Ferðamenn eru sífellt meðvitaðri um umhverfisáhrif ferða sinna og gera jafnvel kröfur um stefnur og vottanir.
  • Ferðamenn sem leggja áherslu á sjálfbærni í ferðum sínum vilja gjarnan heimsækja fáfarnari staði, utan háannar og oftar en einu sinni.
  • Fyrirtæki sem innleiða sjálfbærnistefnu geta byggt upp jákvæða ímynd og orðspor gagnvart gestum sem og starfsfólki og nærumhverfi. 
  • Sjálfbærnistefna getur leitt til sparnaðar, til dæmis með minni orkunotkun, betri úrgangsstjórnun og skynsamlegri nýtingu á auðlindum.
  • Með því að innleiða sjálfbærnistefnu sýna fyrirtæki ábyrga starfshætti og styðja þannig við framtíðarsýn stjórnvalda um Ísland sem leiðandi land í sjálfbærri ferðaþjónustu, sem og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Mitt svæði hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar

Það þurfa ekki allir að finna upp hjólið. Sniðmát að sjálfbærnistefnu er góður leiðarvísir sem stjórnendur geta breytt og aðlagað að sínu fyrirtæki.  

Skjölin sem stjórnendur hafa breytt og vistað á sínu svæði eru alltaf aðgengileg síðar til að aðlaga og uppfæra eftir þörfum. Einnig er hægt að bjóða öðrum aðgang að skjölunum sem eru á vinnusvæðinu, annað hvort til að vinna í þeim saman eða ef ske kynni að nýr starfsmaður taki við af stjórnanda.  

Að lokum er annað hvort hægt að hlaða niður tilbúnu skjali í PDF eða vista slóð að skjalinu sem vefpart á heimasíðu eða á innri vef fyrirtækisins.

Dæmi um sniðmát að sjálfbærnistefnu fyrir ferðaþjónustuna

Hafðu samband