Þjálfa þjálfarann (train the trainer)
Leiðbeinendur þjálfaðir til að þjálfa á vinnustað sínum gagnrýna hugsun, úrlausnahæfni samskipti, sjálfsþekkingu, skapandi lausnanálgun og samvinnu.
Difficult customers- online
This online interactive course on dealing with difficult and/or angry customers is aimed at anyone working in the hospitality sector.
Diplóma í ferðamálafræði
Undirbýr nemendur með hagnýtum hætti fyrir störf í ferðaþjónustu og frekara nám, byggt á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
Sprellifandi fjarkennsla – handbók
Hafsjór af hugmyndum til að virkja þátttakendur, hafa þá lifandi á netnámskeiðum og efla mikilvæga hæfileika þætti í starfi.
On the Job Icelandic – Waiters
Mini-course for foreigners with little or no Icelandic language learning background to master basic customer communication in Icelandic.
Krefjandi og erfiðir gestir
Íslenskt þjálfunarefni í sýndarveruleika til að efla virka hlustun, samvinnu, samskipti, skapandi lausnanálgun og frumkvæði.
Árangursrík samskipti
Vilt þú læra að þekkja hvernig líkamstjáning og raddbeitingin hafa áhrif á hvort samskipti þín séu árangursrík?
Jákvæð áhrif – vinnustaðamenning
Vinnustaðamenning er persónuleiki fyrirtækis – farið yfir einfalda hluti sem starfsfólk getur tileinkað sér til að gera hana jákvæðari
Hrós er sólskin í orðum
Hrós og hvatning virkar eins og sólskin og hefur á starfsanda og fær starfsfólk til að halda áfram að gera vel og hvetur til að gera enn betur.
Góð ráð í tölvupóstsamskiptum og netspjalli
Fjallað um alla lykilþætti sem þarf að hafa í huga í tölvupóstsamskiptum og netspjalli. Einnig er fléttað inn í námskeiðið samskiptum í gegnum netspjall.
Samræmd þjónusta
Fjallað um hvernig samræmd þjónusta og samskipti eru lykillinn að því að stýra væntingum viðskiptavina og samstarfsfólks.
Ráðgefandi þjónusta og sala
Fjallað er um lykilþætti í ráðgefandi sölu og þjónustu og af hverju ráðgefandi sala er í raun þjónusta. Einnig er farið yfir hvaða spurningar „veiða“ upplýsingar um hverju viðskiptavinur er að leita eftir.
Reiðir afvopnaðir – stafrænt
Flestir kannast við að fá erfiða viðskiptavini sem geta jafnvel lagst á starfsfólk eins og vörubílahlass af leiðindum og fúkyrðum. Á þessu námskeiði er því fjallað um mikilvæga þætti til að afvopna erfiða viðskiptavini. Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum, verkefnum.
Topp símaþjónusta – stafrænt
Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma í rafæna námskeiðinu Topp símaþjónusta. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðra. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma. Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum og verkefnum.
Móta þjónustustefnu
Fjallað er um mikilvægi þess að móta stefnu fyrir þjónustuna svo starfsfólkið rói allt í takt. Nefnd eru dæmi um þjónustustefnu sem við höfum unnið fyrir ýmsa aðila.
Þjónustusamskipti upplifuð í sýndarveruleika
Nýlegt og skemmtilegt þjálfunarefni í sýndarveruleikagleraugum til að efla þjónustusamskipti s.s. virka hlustun, samvinnu, samskipti, skapandi lausnanálgun við ákvarðanatöku og frumkvæði í krefjandi aðstæðum.