Viðburðir

Hér getur þú fundið upplýsingar um viðburði sem eru framundan hjá okkur og nálgast upptökur af eldri viðburðum.

Viðburðadagatal ferðaþjónustunnar

Á vef Ferðamálastofu er hægt að nálgast dagatal fyrir fagtengda viðburði innan ferðaþjónustunnar.

Viðburðir framundan

Er Vesturland aðlaðandi fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu?

Fimmtudaginn 3. apríl á Hótel Hamri, Borgarbyggð kl. 10:00 - 13:00

Ferðaþjónusta er ein af grundvallaratvinnugreinum á Vesturlandi og hefur því víðtæk áhrif á þróun samfélagsins. Á þessu málþingi er stjórnendum sveitarfélaga, fyrirtækja í ferðaþjónustu og öðrum hagaðilum ferðamála boðið að borðinu til að ræða saman af ábyrgð um þær áskoranir og tækifæri sem liggja í því að styrkja atvinnugreinina, auka stöðugleika og skapa aðstæður til að efla rótfestu og samfélagsþátttöku starfsfólks sem starfar í ferðaþjónustu á Vesturlandi. Markmiðið er að stilla saman strengi og finna leiðir sem nýtast öllum, bæði atvinnugreininni og samfélaginu.

Aðgangur að fundinum er frír og öllum opinn.

Eflum íslensku innan ferðaþjónustunnar

Kynningafundur miðvikudaginn 26. mars frá 10:00 - 11:00. Teams

Á fundunum fá þátttakendur að kynnast nýju sniðmáti að málstefnu á stafrænu vinnslusvæði okkar sem er öllum opiðMálstefna skerpir línurnar í því hvernig unnið er með tungumál innan fyrirtækishvenær og við hvaða aðstæður eigi að nota íslensku eða önnur tungumál. Málstefna stuðlar einnig að auknu virði, gagnsemi og tilgangi íslenskunnar hjá fyrirtækjum. Þátttakendum mun gefast tækifæri til að læra á sniðmátið og byrja í kjölfarið að skrifa sína eigin málstefnu 

Fundinum stýrir Nichole Leigh Mosty, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar

Búðu til starfsmannahandbók með Hæfnisetri ferðaþjónustunnar.

Biðlisti fyrir næstu vinnustofu

Vinnustofa þar sem sérfræðingar Hæfniseturs ferðaþjónustunnar kynna stafrænt vinnusvæði þar sem aðgengileg eru einföld niðmát fyrir starfsmannahandbækur bæði á íslensku og ensku. Ferðaþjónustaðilum gefst tækifæri til þess að læra á verkfærið og gera sína eigin starfsmannahandbók

Upptökur af eldri viðburðum

Snjöll ferðaþjónusta

Ný tækifæri með stafrænum lausnum og gervigreind

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 18.febrúar 2025

Hvernig getum við stutt við íslensku í ferðaþjónustunni?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 4. desember 2024

Hverjir koma til Íslands og hvernig náum við til þeirra?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 23. október 2024

Öryggi í fyrsta sæti - Hvernig á að stuðla að öryggismenningu?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 14. maí 2024

Ráðningar og Z kynslóðin: Ertu að fara að ráða starfsfólk fyrir sumarið?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 10. apríl 2024

Aðgerðaáætlun í ferðaþjónustu: Viltu hafa áhrif á hæfni og gæði?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 20. nóvember 2023

Samskipti og líðan á vinnustað: Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 3. október 2023

Nýtt nám í ferðaþjónustu: Samspil atvinnulífs og menntakerfa

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 9. maí 2023

Fagmennska og gæði í ferðaþjónustu á Reykjanesi

Hljómahöllin, Reykjanesbær, 17. apríl 2023

Aukin hæfni starfsfólks - fjársjóður í ferðaþjónustu á Vesturlandi

Hjálmaklettur, Borgarnes, 8. mars 2023

Vilt þú ná árangri í markaðssetningu á samfélagsmiðlum?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 1. desember 2022

Gott að vita: Upplýsingagjöf, öryggi og ábyrgð

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 12. október 2022

Góð þjónusta: Hvað þarf til?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 25. maí 2022

Erlent starfsfólk í ferðaþjónustu: Ráðningarferli og fjölmenning

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 1. mars 2022

Nýsköpun í ferðaþjónustu

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 18. nóvember 2021

Seigla og vellíðan á vinnustað: Hvatning, reynslusögur og góð ráð

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar, 21. október 2021

Hafðu samband