- Stafræn markaðssetning og hagnýting gervigreindar í ferðaþjónustu
Stafræn markaðssetning og hagnýting gervigreindar í ferðaþjónustu
Miðvikudaginn 9. apríl á Fosshótel Húsavík
kl. 11:00 - 14:00
Fundarstjóri er Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, verkefnastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Við bjóðum ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi eystra velkomna á fund um stafræna markaðssetningu og hagnýtingu gervigreindar í ferðaþjónustu.
Í heimi þar sem tækniþróun er hraðari en nokkru sinni fyrr, er nauðsynlegt fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu að tileinka sér stafrænar lausnir til að halda í við samkeppnina og mæta væntingum viðskiptavina. Stafræn markaðssetning og gervigreind eru lykilþættir sem geta hjálpað fyrirtækjum að ná betri árangri, auka sýnileika og bæta þjónustu við viðskiptavini.
Fundurinn er opinn öllum og aðgangur frír.

Dagskrá fundar
- Með nýjan starfsmann í vasanum
Þóranna Kristín Jónsdóttir, Markaðsráðgjafi og AI leiðbeinandi
- Snjöll ferðaþjónusta
Ferðapúlsinn og aðrar stafrænar lausnir frá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
Ólína Laxdal og Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingar hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
- Stafræna heimilisfangið
Mikilvægi vefsíðu fyrirtækisins og samspil við samfélagsmiðla
Rögnvaldur Már Helgason, verkefnastjóri upplýsingaþjónustu, útgáfu og almannatengsla hjá Markaðsstofu Norðurlands
- Stafræn markaðssetning
Að nýta stafræna þjónustu í raunveruleikanum
Baldvin Esra Einarsson, framkvæmdastjóri SagaTravel
Létt hádegishressing og spjall
- Gervigreind í ferðaþjónustu
Hvað er að virka og hvað ekki?
Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá Datera
- Kynning hugbúnaðarlausna fyrir ferðaþjónustu
- Keeps – Content Management System
Hvernig getum við selt meira með notkun myndefnis og upplýsinga?
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Keeps ehf. – Content Management System
- Liva bókunarlausn
Er bókunarkerfi þitt að vinna með þér eða gegn þér?
Kristján Aðalsteinsson, ráðgjafi hjá Hugbúnaðarlausnum Advania
Skráning á viðburðinn
