Gagnlegt á hæfni.is
Á heimasíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar finnur þú fræðsluefni, myndbönd, námskeið og góð ráð fyrir ferðaþjónustuna. Við móttöku nýs starfsfólks nýtist eftirfarandi efni:
- Móttaka nýs starfsfólks – 5 hagnýt ráð fyrir stjórnendur
- Fræðslugáttin – úrval námskeiða í boði fjölbreyttra fræðsluaðila. Fyrirtæki geta sótt um styrki til fræðslu og þjálfunar úr starfsmenntasjóðum atvinnulífsins, sjá attin.is.
- Fagorðalistinn – orðasafn algengra orða sem notuð eru í ferðaþjónustunni og geta auðveldað samskipti á vinnustað. Hægt er að æfa sig hvar og hvenær sem er.
- Réttindi og skyldur launafólks – allar helstu upplýsingar um þær reglur sem gilda á íslenskum vinnumarkaði
Áður en starfsmaður kemur til landsins
Er fyrirtækið með umhverfisstefnu, mannauðsstefnu, jafnréttisáætlun, öryggisstefnu, starfsmannahandbók eða annað efni sem nýtist starfsmanninum? Kynntu fyrir starfsmanninum allar þær upplýsingar sem til eru um fyrirtækið og undirbúðu samstarfsfólk fyrir komu hans. Sjá nánar Móttaka nýs starfsfólks – 5 hagnýt ráð fyrir stjórnendur.
Vísaðu starfsmanninum á „Erlent starfsfólk – ráðningarferli“ og undirbúið ykkur sameiginlega, hver gerir hvað.
Ef starfsmaðurinn er ríkisborgari utan EES/EFTA getur atvinnurekandi lagt inn umsóknir um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt fylgigögnum til Útlendingastofnunar áður en starfsmaður kemur til Íslands.
Ef starfsmaðurinn er ríkisborgari innan EES/EFTA getur hann sótt um kennitölu áður en hann kemur til landsins. Umsókn er þó ekki staðfest fyrr en öll gögn hafa borist og umsækjandi hefur komið á skráningarstað.
Bann við mismunun
Með lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði er skýrt kveðið á um bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði, hvort heldur beina eða óbeina, meðal annars á grundvelli kynþáttar eða þjóðernisuppruna.
Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök sem telja að ákvæði laganna hafi verið brotin gagnvart sér geta í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sinna, eftir því sem við á, leitað til kærunefndar jafnréttismála.
Sjálfboðaliðar
Gera verður skýran greinarmun á ólaunaðri vinnu í efnahagslegri starfsemi annars vegar og ólaunaðri samfélagslegri vinnu (sjálfboðavinnu) hins vegar.
Sjálfboðaliði samkvæmt útlendingalögum er einstaklingur eldri en 18 ára sem ætlar að starfa ólaunað fyrir frjáls félagasamtök sem starfa að góðgerðar- eða mannúðarmálum, eru ekki rekin í hagnaðarskyni og eru undanþegin skattskyldu. Heimilt er að víkja frá því skilyrði að starf sé unnið fyrir viðurkennd félagasamtök ef markmið tiltekins verkefnis er sannarlega í mannúðar- og góðgerðarskyni.
Sjá nánar um ólaunaða vinnu/„sjálfboðaliðastörf“ á vinnuréttarvef ASÍ og yfirlýsingu SA og ASÍ vegna sjálfboðaliða frá 2016.
Starfsmannaleigur
Starfsmannaleigum og erlendum þjónustufyrirtækjum ber að skrá sig með rafrænum hætti hjá Vinnumálastofnun ásamt því að veita upplýsingar um starfsfólk sitt sem starfar hér á landi.
Nánari upplýsingar á vef Vinnumálastofnunar og á vinnuréttarvef ASÍ.
Hvernig auglýsi ég starf hjá EURES, evrópskri vinnumiðlun? (spurt og svarað á vef Vinnumálastofnunar)
Ef atvinnurekandi vill auglýsa hjá Eures í þeim tilgangi að leita umsókna frá atvinnuleitendum frá löndum innan EES/EFTA er um sama ferli að ræða og þegar auglýsa á almennt starf á vef Vinnumálastofnunar, sjá nánar svar varðandi skráningu starfa hjá Vinnumálastofnun. Það sem hafa verður í huga ef atvinnurekandi vill auglýsa starfið hjá Eures vinnumiðlun er að haka þarf við það sérstaklega á mínum síðum. Þegar atvinnurekandi hefur lokið við að skrá starf á mínum síðum þá hefur EURES ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun samband og fer nánar yfir skráningu með atvinnurekanda, gengur úr skugga um að allar upplýsingar liggi fyrir áður en auglýsing er birt á vef. EURES störf eru ávallt auglýst með íslenskum og enskum texta og geta EURES ráðgjafar aðstoðað atvinnurekendur við þýðingu á ensku. EURES störf eru auglýst á vef Vinnumálastofnunar og inni á vefgátt EURES: www.eures.europa.eu þar sem þau er sérstaklega merkt sem EURES störf frá Íslandi.
Fjölmenningarsetur – ráðgjöf og upplýsingar
Fjölmenningarsetur (MCC) veitir ráðgjöf og upplýsingar í tengslum við málefni innflytjenda og flóttamanna á Íslandi.
Markmið MCC er að gera hverjum einstaklingi kleift að verða virkur meðlimur í íslensku samfélagi, sama hver bakgrunnur hans er og hvaðan hann kemur.
Á vefsíðu MCC er að finna gagnleg upplýsingar um marga þætti daglegs lífs, réttindi, stjórnsýslu og þjónusta á Íslandi og flutning til og frá Íslandi.
Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum og aðstoð með því að hafa samband við okkur í netföng mcc@mcc.is eða í síma (+354) 450-3090.