Samningatækni á mannlegu nótunum

Við skoðum hvaða eiginleikar einkenna góðan viðsemjanda, mikilvægi undirbúnings og þess að horfa á allar hliðar ásamt því að forðast algeng mistök.

Uppúr hjólfarinu

Varanlegar breytingar krefjast undirbúnings og breytts hugarfars. Lærum aðferðir til að halda okkur öguðum í breytingavegferðinni.

Hugarfar grósku – Skapandi hugsun

Við höfum val um hugarfar og hugarfar grósku hjálpar okkur að takast á við áskoranir í síbreytilegu umhverfi. Lærum að hugsa á grænu ljósi.

Breytingastjórnun

Lærðu að selja starfsfólki virði breytinga og að byggja upp traust, ásamt því að læra öflugar aðferðir til að stýra þér og öðrum í gegnum breytingar.

Flæði – Falinn kraftur árangurs

Í jákvæðri sálfræði er til aðferð sem kallast „að vinna í flæði“ – þetta er öflug leið sem skilar okkur margfalt til baka.

Diplóma í ferðamálafræði

Undirbýr nemendur með hagnýtum hætti fyrir störf í ferðaþjónustu og frekara nám, byggt á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.

Framtíðarleiðtoginn

Lögð er áhersla á hagnýtingu jákvæðrar sálfræði í leiðtogahlutverkinu þar sem leitast er við að draga fram bestu eiginleika hvers og eins.

Virðisaukandi teymi

Þjálfa stjórnendur í að verða teymisþjálfari síns teymis og að þeir öðlist færni til að styðja við og efla jákvæða framþróun.

Nýr stjórnandi

Enginn fæðist stjórnandi. Farið er í grunnatriði nútíma stjórnunar ásamt því að skilja hvað felst í leiðtogahlutverkinu.

Jafningjastjórnun

Það er krefjandi að verða stjórnandi jafningja ekki síst ef þú varst áður í hópnum. Við förum yfir þær áskoranir sem fylgja nýju hlutverki.

Áhrifarík framsaga

Þjálfunin er öflug og ætluð þeim sem ætla að ná árangri með því að; fanga athyglina strax, veita innblástur, selja hugmyndir og njóta þess að miðla.

Leiðtogi í fjármögnun og fjárfestingum

Áhersla á framtaksfjárfestingar bæði út frá sjónarhóli fjárfesta, hvort sem það eru einkafjárfestar eða fagfjárfestar, og út frá þeim sem eru að leita eftir fjármagni, eins og t.d. fyrir sprotafyrirtæki.

STJÓRNUN OG REKSTUR FYRIRMYNDARFYRIRTÆKJA

 Ný tækni og aðferðafræði kallar á ný vinnubrögð stjórnenda. Námskeiðið leggur áherslu á almenna stjórnun og rekstrarhagfræði fyrir fyrirmyndarfyrirtæki eða fyrirtæki sem vilja komast í fremstu röð.

Samskipti og vellíðan á vinnustað

Í fyrirlestrinum er m.a. farið yfir hvað fræðimenn hafa verið að segja um starfsánægju og hvernig best er að hlúa að henni á vinnustað (1 klst.).

Hafðu samband