Veitingar

Fagleg framkoma og þjónusta skiptir miklu máli fyrir upplifun gesta og orðspor veitingastaða.

Algeng orð – eldhús

Algeng orð – þjónusta í sal

Drykkir – áfengir

Drykkir – óáfengir

Fæðuofnæmi

Kvartanir

Matvælaöryggi

Menningarnæmi

Samskipti við gesti

Snyrtimennska og hreinlæti

Þjónað til borðs

Skoða allt

Almenn snyrtimennska og persónulegt hreinlæti skiptir miklu máli.

  • Vertu í viðeigandi klæðnaði/einkennisfatnaði.
  • Þvoðu þér reglulega um hendurnar.
  • Passaðu upp á að neglur séu snyrtilegar.
  • Haltu hári í skefjum.
  • Farðu eftir reglum fyrirtækisins um notkun skartgripa, snyrtivara og ilmvatna.
  • Ekki neyta tóbaks eða nota tyggigúmmí þar sem gestir sjá til.

Hreinlæti og öryggi

Snyrtimennska og hreinlæti skapa ekki aðeins jákvæða ímynd veitingastaða heldur eru einnig mikilvæg öryggisatriði.

  • Ef illa er staðið að hreinlæti getur það valdið veikindum.
  • Nauðsynlegt er að þvo hendur reglulega og þrífa vandlega milli gesta.
  • Eins er mikilvægt að þú snertir ekki mat gesta þegar hann er borinn fram og að þú haldir neðarlega á glösum viðskiptavina.

Mikilvægt er að gólf séu hrein og hálkufrí. Þurrkaðu upp og þrífðu jafnóðum allt sem fellur á gólfið.

Hafðu samband