Menntamorgunn ferðaþjónustunnar

Þema  menntamorgunsins 10. apríl,  kl. 9 – 9:45 er undirbúningur fyrir vertíðina – ráðningar og Z kynslóðin.

Þar verður meðal annars tekið fyrir hvað stjórnendur þurfa að hafa í huga við vinnumarkaðsmál og ráðningu sumarstarfsfólks, hvernig sé hægt að halda árangursrík starfsviðtöl og fylgja nýliðum eftir, ásamt hugvekju um breyttar þarfir nýrrar kynslóðar og hvernig sé hægt að mæta þeim.

Takið tímann frá, skráning hér að neðan. 

Dagskrá:

Hvernig finnum við rétta aðilann í teymið? Góð ráð fyrir árangursrík atvinnuviðtöl
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi

Hvað ber að hafa í huga þegar sumarstarfsfólk er ráðið í vinnu?
Íris Mist Arnardóttir, lögfræðingur hjá SA

Ný kynslóð og aðrar væntingar
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Símanum og stjórnarmaður í Bláa Lóninu

Fræðsla og menning í fjölbreyttu starfsumhverfi
Eir Arnbjarnardóttir, mannauðsstjóri hjá Center Hotels

Fundarstjóri er Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins

SAF-logo-transparent

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, SAF og Markaðsstofa landshlutanna.

Hafðu samband