Hvað gerum við?
- Hæfnisetrið þróar fræðslu- og stuðningsefni fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu í samstarfi við hagaðila
- Við veitum ráðgjöf og aðstoð til fyrirtækja innan ferðaþjónustunnar við að koma á fræðslu og þjálfun
- Við vinnum að þróun námslínu fyrir ferðaþjónustu í samvinnu við atvinnulífið, fræðsluaðila, framhaldsskóla og háskóla
- Vinnum samkvæmt þjónustusamningi við menningar- og viðskiptaráðuneytið, Þjónustusamningur MVF og FA 2024
Gildi Hæfnisetursins eru: Fagmennska – Samvinna – Lausnir
Hlutverk
- Að starfa á forsendum ferðaþjónustunnar til að efla hæfni og fagmennsku stjórnenda og starfsfólks og stuðla þannig að auknum gæðum, jákvæðri ímynd og arðsemi greinarinnar.
- Að greina fræðsluþarfir, þróa lausnir, mynda tengsl og auka samvinnu um fræðslu og menntun.
- Að stuðla að árangursríkri fræðslu í samræmi við þarfir greinarinnar og gera ávinninginn af henni sýnilegan.
Framtíðarsýn
- Uppbygging hæfni innan ferðaþjónustu er á forsendum og í takt við þarfir og þróun greinarinnar og samfélagsins.
- Ferðaþjónustan er eftirsóknarverður starfsvettvangur þar sem bjóðast tækifæri til starfsþróunar.
- Ferðaþjónustan hefur á að skipa framúrskarandi hæfu starfsfólki.
Stýrihópur
Í stýrihópi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar sitja fulltrúar tilnefndir af SAF, ASÍ, Ferðamálastofu, auk menningar- og viðskiptaráðuneytisins og mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Mynd: Stýrihópur Hæfniseturs ferðaþjónustunnar á fundi með Lilju Alfreðsdóttur ferðamálaráðherra í janúar 2023
FORMAÐUR:
Jóhannes Þór Skúlason SAF – Samtökum ferðaþjónustunnar
MEÐSTJÓRNENDUR:
Aleksandra Leonardsdóttir ASÍ
Elías Bj. Gíslason Ferðamálastofu
Sunna Þórðardóttir Menningar- og viðskiptaráðuneytið
Þóra Þórðardóttir Mennta- og barnamálaráðuneytið