Ráðningarferli erlends starfsfólks

Erlendir ríkisborgarar sem koma til starfa innan ferðaþjónustunnar þurfa að sækja um ýmis leyfi og réttindi. Mikilvægt er að hefja umsóknir tímanlega því ferlið getur tekið allt að sex mánuðum. Leiðbeiningar okkar auðvelda stjórnendum og starfsfólki ráðningarferlið með því að útskýra hvert skref í ferlinu.

Mismunandi reglur gilda fyrir erlenda ríkisborgara eftir því hvort þeir koma frá aðildarríki innan eða utan EES/EFTA eða jafnvel falla undir skilgreiningar um undanþágur frá atvinnuleyfi. Mikilvægt er að atvinnurekendur þekki ferlið við ráðningar erlends starfsfólks svo þeir geti upplýst starfsfólkið, leiðbeint þeim og tryggt eðlilega framvindu ráðningaferlisins. Þannig tryggjum við góða móttöku erlendra ríkisborgara á íslenskan vinnumarkað. 

Til að gefa atvinnurekendum yfirsýn yfir það sem þarf að gera og auðvelda aðgengi að upplýsingum hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, í samstarfi við Fjölmenningardeild innan VMST, SAF, ASÍ og ferðaþjónustufyrirtæki, sett saman leiðbeiningar fyrir báða aðila til að fylgja. 

Efnið er aðgengilegt á fjölda tungumála (sjá tungumálahnapp neðst til hægri á síðunni) og eru atvinnurekendur hvattir til að vísa erlendu starfsfólki sínu á það til upplýsinga og undirbúnings. Atvinnurekendur ættu að vera starfsfólki til halds og trausts í gegnum allt umsóknarferlið  og kynna sér vel sína ábyrgðarþætti í því. 

Ánægt starfsfólk skapar gott orðspor – hér, þar og alls staðar

Efni leiðbeininga er sótt/vísað á síður: Alþingis, Arion banka, ASÍ, Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, Fjölmenningardeild innan VMST, Iðunnar fræðsluseturs, Stafræns Íslands, Íslandsbanka, Landsbankans, Sjúkratrygginga Íslands, Skattsins, Skírteini.is, Stjórnarráðs Íslands, vinnumarkaðsvefs SA, vinnuréttarvefs ASÍ, Vinnumálastofnunar,Útlendingastofnunar og Þjóðskrár Íslands.

Hafðu samband