Það var þétt setið en góður andi á vinnustofunni „Eflum íslenskunotkun á vinnustaðnum“ sem Hæfnisetrið hélt í morgun, með 20 þátttakendum. Fjölbreyttur hópur stjórnenda, starfsfólks og hagaðila úr ferðaþjónustu kom saman til að kynnast hagnýtum lausnum og stuðningsefni sem Hæfnisetrið hefur uppá að bjóða til að efla íslensku í daglegu starfi á fjölmenningarlegum vinnustöðum ferðaþjónustunnar.
Við fórum yfir margþættan ávinning þess fyrir ferðaþjónustufyrirtæki að innleiða málstefnu, helstu skrefin við það ferli og kynntum sniðmát að málstefnu sem er aðgengilegt á stafræna vinnusvæðinu á hæfni.is.
Einnig sýndum við einfaldar leiðir til að styðja við íslenskunotkun og þjálfun á vinnustað sem má nálgast á vefnum, m.a. stafrænar lausnir, leiðir til sjálfsnáms, fagorðalista ferðaþjónustunnar og upplýsingar um fjölda íslenskunámskeiða.
Loks fengum við innsýn í spennandi samstarfsverkefni í íslenskuþjálfun á Landspítalanum sem Mímir-símenntun hefur umsjón með, sem og þróunarverkefni sem er að fara af stað með Mýrdalshrepp. Við þökkum Maríu Stefaníu og Söndru Björg hjá Mími fyrir fróðlega kynningu.
Það var ánægjulegt að heyra að greinilegur áhugi og vilji er til staðar innan ferðaþjónustunnar til að gera góðar breytingar sem styðja íslenskuna – bæði í innri samskiptum og í móttöku gesta. Þetta er langtímaverkefni sem krefst átaks, áhuga og samvinnu – en íslensk ferðaþjónusta er ekki óvön því að takast á við krefjandi verkefni!
Kynnið ykkur málið og fylgist með næstu viðburðum: https://haefni.is/haefnisetrid/vidburdir


