Gestrisni í fyrirrúmi!

Fyrsti Menntamorgunn ferðaþjónustunnar ársins 2026 fór fram í gær undir yfirskriftinni „Gesturinn í aðalhlutverki“. Rýnt var í hvernig gestrisni, gæði og þjónustugleði – studd af skýrri upplýsingagjöf, samræmdum gæðaviðmiðum og áreiðanlegum verkferlum – skapa gestum okkar ógleymanlegar upplifanir og styrkja um leið samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.

Júlíus Freyr Theódórsson leiðsögumaður flutti þarfa hugvekju um mikilvægi þess að hverfa frá hugarfari sem snýst um að einfaldlega „fylla skrokka í sæti” yfir í að skapa gestum ógleymanlegar minningar. Þar gegnir góður leiðsögumaður óneitanlega lykilhlutverki sem oft jafnvel eini tengiliður ferðafólks við land og þjóð.

Við fengum dýrmæta innsýn utan geirans frá Hildi Einarsdóttur forstjóra Advania sem fjallaði um þeirra þjónustustefnu sem snýst um að setja viðskiptavininn og þarfir hans ávallt í fyrsta sætið og þannig sérsníða þjónustuna að hverjum og einum.

Ólína Laxdal fjallaði að lokum um nauðsyn þess að nálgast þjónustuhlutverkið af fagmennsku og fyrirhyggju þannig að upplifanir gesta einkennist ekki af „þetta reddast hugarfari“ þjónustuveitenda heldur sé starfsfólk þjálfað í plani a, b og c  og viðbrögðum við frávikum til að skapa samfellda og hnökralausa þjónustuupplifun.

Í ferðaþjónustunni snýst nefnilega allt um fólk og að skapa þeim góðar minningar og það er einmitt það sem gerir greinina að svo skemmtilegum og gefandi starfsvettvangi.

Fundarstjóri var Þuríður Aradóttir Braun forstöðukona markaðsstofu Reykjaness.

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru samstarfsverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa landshlutannna og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar,

Ef þú misstir af viðburðinum geturðu horft á upptökuna hér: https://haefni.is/haefnisetrid/vidburdir/

Hafðu samband