Erlent starfsfólk er ferðaþjónustunni gríðarlega mikilvægt

Í grein sem birtist á Vísi í dag vekur Haukur Harðarson, verkefnisstjóri Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, athygli á nýútkomnum leiðbeiningum sem ætlað er að auðvelda ráðningarferlið og aðlögun starfsmannsins á íslenskum vinnumarkaði.

Hér á eftir má lesa greinina.

Ferðaþjónustan stendur frammi fyrir þeirri áskorun að stór hluti þess erlenda starfsfólks sem starfaði í greininni fyrir heimsfaraldur er horfinn og hefur færst til annarra atvinnugreina. Fyrir tíma heimsfaraldurs var fólk af erlendum uppruna þriðjungur af heildarfjölda starfsfólks í ferðaþjónustu. Án starfskrafta þeirra hefði ekki verið hægt að taka á móti þeim mikla fjölda ferðamanna sem sótti landið og þjónusta þá á þann máta sem vilji er til. Um var að ræða starfsfólk sem settist hér að með sínar fjölskyldur en líka svokallað árstíðarstarfsfólk sem kom hingað til að vinna yfir háönnina. Spár greiningaraðila, svo sem Seðlabankans og SA, benda til þess að það þurfi 15 þúsund erlenda starfsmenn inn í hagkerfið á næstu árum, þar af 7 til 8 þúsund í ferðaþjónustu.

Mikilvægt er að ferðaþjónustan taki vel á móti erlendum ríkisborgurum sem koma hingað til lands til starfa og vandi móttökuna. Fagleg og góð móttaka nýs starfsfólks er lykillinn að farsælu samstarfi, ánægt starfsfólk skapar ferðaþjónustunni gott orðspor – hér, þar og alls staðar.

Erlendir ríkisborgarar þurfa að sækja um margs konar leyfi og réttindi til að fá að starfa hér. Mismunandi reglur gilda eftir því hvort þeir koma frá aðildarríki innan eða utan EES/EFTA. Til að gefa atvinnurekendum yfirsýn yfir það sem þarf að gera í ráðningarferlinu og auðvelda aðgengi að upplýsingum hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, í samstarfi við Fjölmenningarsetur, SAF, ASÍ og ferðaþjónustufyrirtæki, sett saman leiðbeiningar fyrir báða aðila til að fylgja. Þar má jafnframt finna upplýsingar sem flýtt geta fyrir ráðningarferlinu og aðlögun starfsmannsins á íslenskum vinnumarkaði. Atvinnurekendur eru hvattir til þess að kynna sér efnið vel og vísa erlendu starfsfólki sínu á það.

Leiðbeiningarnar voru kynntar á Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem fram fór á dögunum og sagði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF og fundarstjóri, af því tilefni:

Mikilvægt er að ferðaþjónustan taki vel á móti erlendum ríkisborgurum sem koma hingað til lands til starfa og vandi móttökuna.

„[…] við þurfum að hressa upp á þekkingu okkar á því hvernig við tökum á móti erlendu starfsfólki, hvernig við förum í gegnum þjálfun fyrir erlent starfsfólk, hvernig aðbúnaður þess er til þess að fyrirtækin og starfsfólkið geti náð að sinna kúnnunum, náð að halda niðri kostnaði fyrir fyrirtækin og koma fólki inn í störfin sem fyrst og með sem bestum aðbúnaði […]“

Nichole Leigh Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs, flutti erindi undir yfirskriftinni Fjölbreytileikinn vinnur og gaf góð ráð um það hvernig standa megi að móttöku erlends starfsfólks.

„Þegar við tökum vel á móti fólki og upplýsum það komum við í veg fyrir misskilning, óraunhæfar væntingar eða rangar upplýsingar frá upphafi [og] stuðlum að trausti og trúverðugleika vinnuveitanda.“

Leiðbeiningarnar Erlent starfsfólk – ráðningarferli má nálgast á heimasíðu Hæfnisetursins, hæfni.is.

Nálgast má upptöku frá Menntamorgni á facebook síðu Hæfnisetur ferðaþjónustunnar.

Haukur Harðarson, verkefnisstjóri Hæfniseturs ferðaþjónustunnar

Hafðu samband