6. Eftirfylgni og endurskoðun

Það er í höndum stjórnenda að tryggja markvissa eftirfylgni með þjálfun og úrbótum.

  • Við breytingar á vöruframboði, vinnutilhögun eða þjónustu getur þurft að uppfæra verklagsreglur og viðbragðsáætlanir. Ytri aðstæður eins og breytingar á opinberum reglum og öryggiskröfum geta einnig krafist endurskoðunar á verkferlum.
  • Mikilvægt er að fyrirtækið setji sér skýr og mælanleg markmið í öryggismálum og endurmeti reglulega árangur. Dæmi um mælikvarða:
    • Hlutfall starfsfólks sem lýkur fræðslu árlega
    • Fjöldi tilkynninga um atvik og úrbótatillögur
    • Tími frá atviki þar til úrbætur eru framkvæmdar
  •  Eftirfylgni, endurskoðun og stöðugt aðhald gera öryggi og umbætur að órjúfanlegum þætti í starfseminni og styðja við góða öryggismenningu.

Hafðu samband