- Jákvæð samskipti og mannauðsmál við krefjandi aðstæður
Jákvæð samskipti og mannauðsmál við krefjandi aðstæður
Miðvikudaginn 30. apríl.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4a, Njarðvík
Fundartími 09:00 - 10:30
Fundarstjóri er Þuríður Halldóra Aradóttir forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness
Við þekkjum öll áhyggjur sem fylgja náttúruvá eða öðrum hamförum og áskoranir sem því fylgja.
Á fundinum munum við ræða hvernig markviss stuðningur og opið samtal geta verið lykillinn að því að byggja upp og viðhalda fagmennsku starfsanda á umbrotatímum. Með því að vera samstíga og deila upplifunum, getum við skapað umhverfi þar sem starfsfólk sækist eftir að efla sig, læra af öðrum og bjóða upp á framúrskarandi þjónustu, jafnvel þegar mikillar aðlögunar er krafist.
Jákvæð samskipti og stuðningur á milli starfsmanna og stjórnenda veitir innblástur, styrk og samheldni sem er nauðsynleg til að vaxa og blómstra á erfiðum tímum. Þess vegna hvetjum við alla í ferðaþjónustunni að taka þátt í þessum mikilvæga fundi og leggja sitt af mörkum í uppbyggilegar umræður.

09:00-09:10 Dagskrá hefst.
„Forgangsröðum vellíðan starfsmanna í framtíðarsýn og stefnumótun ferðaþjónustunnar“ – Ólína Laxdal og Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingar – Hæfnisetur ferðaþjónustunnar.
„Hvað viltu vita um kjarasamninga og starfsmannamál?“ Harpa Rún Glad, lögmaður á vinnumarkaðssviði – Samtök atvinnulífsins
„Mannauðsmál í breyttu landslagi“ – Ægir Viktorsson, forstöðumaður á mannauðssviði – Bláa Lónið
„Góð samskipti á vinnustaðnum“ – Steinunn Snorradóttir, námsbrautarstjóri – Isaviaskólinn
„Námskeið og fræðsla fyrir ferðaþjónustufyrirtæki“ – Hólmfríður Karlsdóttir, deildarstjóri fræðslu og Guðjónína Sæmundsdóttir forstöðumaður – Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Skráning á viðburðinn
Aðgangur að fundinum er frír og opinn öllum

