Námið er 90 einingar og skiptast í 40 eininga kjarna og 50 eininga sérsvið. Sviðin eru Móttaka gesta, Böð, lindir og lón og Veitingar. Áfangar sem fást metnir með raunfærnimati stytta námið.
Námið hefst fyrri hluta árs 2025. Námið verður í boði fyrir fólk sem hefur lokið raunfærnimati. Raunfærnimat og nám er í boði stafrænt og þátttaka óháð búsetu.
Að hafa náð 23 ára aldri og hafa unnið 3 ár í ferðþjónustu
Raunfærnimat er þátttakendum að kostnaðarlausu
Raunfærnimat er í boði á íslensku og ensku
Ef þú hefur unnið við ferðaþjónustu á einhverum þeirra sviða sem námið nær til þá hefurðu safnað reynslu, þekkingu og færni og þá áttu erindi í raunfærnimat. Ef færnin er til staðar er hún staðfest með raunfærnimati og nám styttist til samræmis við það. Niðurstaða raunfærnimats hefur sama gildi og formlegt nám. Sjá nánar hér