Þrif á gólfum
- Hvolfdu stólum upp á borð ef þú ert t.d. að þrífa matsal.
- Fjarlægðu allt rusl af gólfinu.
- Ryksugaðu, sópaðu eða rykmoppaðu yfir gólfið. Þar sem teppi eru á gólfum þarf að ryksuga meðfram veggjum, út í öll horn og undir húsgögnum þar sem það er hægt.
- Þvoðu síðan gólfið með vatni eða sápuvatni (ath. tegund sápuefnis fer eftir gerð gólfefnis). Athugaðu að það má ekki nota mikið vatn á parketgólf.
- Mundu að strjúka af gólflistum reglulega.
Mundu að skilja gólfin aldrei eftir blaut/rök svo hætta skapist af. Nauðsynlegt er að hafa færanleg varúðarskilti þegar gólf eru nýþvegin eða blaut.