Almenn snyrtimennska og persónulegt hreinlæti skiptir mjög miklu máli
- Vertu í viðeigandi klæðnaði/einkennisfatnaði.
- Þvoðu þér reglulega um hendurnar.
- Passaðu upp á að neglur séu snyrtilegar.
- Haltu hári í skefjum.
- Farðu eftir reglum fyrirtækisins um notkun skartgripa, snyrtivara og ilmvatna.
- Ekki neyta tóbaks og nota tyggigúmmíi þar sem viðskiptavinir sjá til.
- Til þess að borða og drekka skaltu fara afsíðis þar sem viðskiptavinir sjá ekki til og eins ef þú þarft að sinna persónulegum erindum í símanum þínum.
Starfsfólk í þrifum er mikilvægur hlekkur í allri þjónustuupplifun gesta. Mundu að bjóða alltaf „góðan daginn“ eða „gott kvöld“ og brosa.