Nauðsynlegt er að þú kynnir þér mikilvæg öryggisatriði, m.a.:
- Hvar eru neyðarútgangar og flóttaleiðir?
- Hvar eru slökkvitæki og eldvarnateppi og hvernig á ég að nota búnaðinn?
Eldvarnarteppi
Eldvarnarteppi á að nota þegar upp kemur eldur í potti eða pönnu við eldamennsku eða ef upp kemur eldur í fatnaði eða smærri hlutum.
Hvernig á að nota eldvarnarteppi?
- Kippið í borðana tvo sem standa út úr kassanum sem inniheldur eldvarnarteppið til að ná teppinu út.
- Haldið um borðana og snúið hálfhring upp á teppið. Með þessum hætti er betur hægt að verjast hitanum.
- Leggið teppið og þéttið eins og mögulegt er þar til eldurinn hefur slokknað.
- Ef reynt er að slökkva eld í smáum hlut, t.d. bók eða bangsa er teppinu vafið eins vel um hlutinn og kostur er.
- Það getur tekið nokkrar mínútur að kæfa eldinn með þessum hætti og því mikilvægt að gefa teppinu tíma til að vinna á eldinum.
- Reynið ekki að fara út með logandi pott eða pönnu – slíkt skapar meiri hættu.
- Ef hægt er, slökkvið undir hellunni og dragið pott eða pönnu varlega af hellunni (sé helluborðið slétt).
- Hafið teppi á pottinum eða pönnunni þangað til slökkviliðið kemur.
Slökkvitæki
Handslökkvitækjum er ætlað að slökkva eld á byrjunarstigi, áður en hann vex og verður óviðráðanlegur.
- Við notkun slökkvitækja skal gæta þess að halda því uppréttu og beina slökkviefninu með jafnri hliðarhreyfingu að rótum eldsins.
- Það fer eftir stærð og gerð tækisins hve fljótt það tæmist, en gott er að hafa í huga að þau tæmist á sekúndum ekki mínútum.
Upplýsingar sem hér eru birtar eru fengnar frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.