1. Sjáðu fyrir þér endamark og skrefin til að komast þangað
Hver er framtíðarsýn fyrirtækisins og hvernig kemstu þangað? Settu þér skýrt og raunsætt endamarkmið og útlistaðu skrefin sem koma þér þangað. Einbeittu þér að næsta skrefi í staðinn fyrir að einblína eingöngu á lokamarkmiðið.
Æfing:
Brjóttu markmiðið niður í smærri markmið, vörðurnar á leiðinni, það er leiðarvísirinn. Einbeittu þér að smærri markmiðunum í staðinn fyrir að horfa aðeins á lokamarkmiðið. Mundu að „allt eða ekkert“ hugarfarið er ekki sjálfbært, það er betra að hafa í huga að tvö skref aftur og eitt skref áfram er betra en að gefast upp.
Komdu þér þægilega fyrir í einrúmi. Lokaðu augunum og leyfðu þér að sjá fyrir þér hvernig þú stígur hvert skref, nærð að komast að hverri vörðu og að lokum í mark. Hvernig líður þér þegar þú nærð hverjum áfanga fyrir sig? Leyfðu þér að sjá aðstæðurnar raunverulega fyrir þér.
2. Skoðaðu hindranir á leiðinni – Hvernig ætlar þú að yfirstíga þær?
Rýndu í óvissuna og veltu upp mögulegum hindrunum að settu marki. Í staðinn fyrir að einblína á hindranirnar sjálfar, einbeittu þér að því hvernig þú munt takast á við áskoranirnar. Aðlögunarhæfni og útsjónarsemi er lykillinn að lausnamiðaðri nálgun.
Æfing:
Hvað gæti mögulega komið í veg fyrir að markmiðum þínum sé náð? Listaðu upp allar mögulegar leiðir til að yfirstíga hindranir sem gætu komið upp í átt að settu markmiði, íhugaðu hvernig þú ætlar að bregðast við áskorunum og finna lausnir.
3. Veldu bjartsýnissjónaukann þegar horft er fram á við
Veldu bjartsýna og vongóða sjónaukann í staðinn fyrir þann svartsýna þegar horft er fram á veginn. Þetta snýst ekki um að hunsa neikvæðar hugsanir heldur að setja athygli á hvað gæti farið vel í staðinn fyrir að einblína á hvað gæti farið illa. Það er auðveldara að leita í neikvæðar hugsanir heldur en jákvæðar, þess vegna er mikilvægt að þjálfa hugsunina. Bjartsýni og jákvæðni eykur sköpunargleði og ýtir undir lausnamiðaða hugsun.
Æfing:
4. Trúðu á þig og teymið
Hafðu trú á þér, fyrirtækinu og starfsfólkinu. Sýndu þér og öðrum skilning og leggðu áherslu á að byggja upp sjálfstraust starfsfólks, til dæmis með því að veita uppbyggilega endurgjöf, hrós þegar við á og koma auga á og efla styrkleika starfsfólks. Gefðu starfsfólki tækifæri til að tjá skoðanir sínar, hafa áhrif, vera hluti af samræðum sem snerta framtíðarsýn fyrirtækisins og eiga hlutdeild í þeim ákvörðunum sem teknar eru. Starfsþjálfun, fræðsla og stuðningur frá öðrum eykur trú á eigin hæfni.
5. Skapaðu sterkt stuðningsnet
Sterkt stuðningsnet getur gripið stjórnendur og starfsfólk á óvissutímum. Hugsaðu um þitt eigið stuðningsnet – hver veitir þér leiðsögn og stuðning? Hvað hvetur þig áfram? Getur starfsfólk leitað í stuðning á vinnustaðnum? Byggðu upp andrúmsloft þar sem traust ríkir og hægt er að tala á hreinskilinn og heiðarlegan hátt um það sem hvílir á hverju sinni. Myndaðu traust með því að hlusta á þarfir starfsfólks og bregðast við eftir bestu getu.