Fagorðalistar ferðaþjónustunnar eru fyrir móttöku, þrif og umgengni, eldhús, skoðunarferðir og akstur, afþreyingu og þjónustu í sal. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum.
Fiskabúrið geymir safn heita yfir matfiska sem notaðir eru í réttum veitingastaða með myndum eftir Jón Baldur Hlíðberg. Fiskabúrið er á fjórum tungumálum.
Hlusta má á framburð orðanna á íslensku.
Veggspjöld
hvað?
- Listi yfir algeng orð og frasa sem notuð eru í ferðaþjónustu.
- Til á íslensku, ensku og pólsku.
- Hlusta má á framburð orðanna.
Hvar?
Hægt að nota/æfa hvar og hvenær sem er, bæði í síma og tölvu.
Af hverju?
- Til að efla góða samvinnu og sameiginlegan skilning starfsfólks í ferðaþjónustu.
- Til að veita afbragðs þjónustu.
Fyrir hverja?
- Stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja sem vilja hvetja sitt starfsfólk til góðra verka.
- Starfsfólk í ferðaþjónustu sem talar litla ensku og/eða íslensku.
- Viðskiptavini í samskiptum við erlent starfsfólk.
Hvað tekur langan tíma að fara í gegnum efnið?
Allt eftir því hvað hentar best. Hægt er að æfa sig heima eða í vinnunni, á kaffihúsi eða hvar sem er. Starfsfólk getur líka gripið til fagorðalistans þegar þörf er á í vinnunni, t.d í símum sínum.
Hver er ávinningurinn?
Aukin gæði, færri kvartanir, meiri starfsánægja, meiri ánægja gesta.
Skref fyrir skref
- Finndu þitt svið, þú getur valið orðalista fyrir móttöku, þrif, umgengni, eldhús, afþreyingu, skoðunarferðir og akstur og algenga frasa
- Finndu orð sem þú vilt læra eða þarft að nota og hlustaðu á framburðinn.
- Æfðu þig að segja orðin sem oftast og líka fyrir framan viðskiptavinina.