Ferðaþjónustan skiptir máli!
Ferðaþjónustan er ein af lykilatvinnugreinum á Vesturlandi og hefur mikil áhrif á lífsgæði, atvinnulíf og þróun samfélaganna. Til að atvinnugreinin styrkist og samfélögin blómstri áfram er mikilvægt að starfsfólk geti sest að til frambúðar.
Hvernig eflum við samfélagið okkar enn frekar sem aðlaðandi búsetukost?
Taktu þátt í samtalinu á málþingi um móttöku, inngildingu og búsetukosti starfsfólks í ferðaþjónustu á Vesturlandi.
10:00 Morgunkaffi og tengslamyndun
Þema 1: Ferðaþjónustan sem samfélagsleg auðlind
Þema 2: Inngilding starfsfólks – lykill að rótfestu
Þema 3: Búsetumál – áskoranir og sameiginleg ábyrgð
Pallborðsumræður: Að koma til að vera – hvernig sköpum við samfélag og aðstöðu sem laðar að starfsfólk til búsetu?
Þátttakendur: Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri í Kjósarhreppi, Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitastjóri Dalabyggðar, Guðveig Lind Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggar, Kristinn Jónasson, bæjastjóri Snæfellsbæjar.
12:30 Málþingi líkur
Súpa og samtal
Óformlegt samtal og tengslamyndun þátttakenda