Til að aðstoða fyrirtæki í ferðaþjónustu við að mæta nýjum aðstæðum í kjölfar Covid-19 hafa Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, SAF og Ferðamálastofa sett saman leiðbeiningar fyrir stjórnendur að styðjast við. Þar eru jafnframt leiðbeiningar um sóttvarnir fyrir gististaði, veitingastaði, afþreyingu og sýningarsvæði og farartæki. Efnið er unnið í samvinnu við landlæknisembættið.
Ferðavenjur og þarfir ferðamanna koma að öllum líkindum til með að breytast í kjölfar Covid-19. Ferðamenn framtíðar sækja væntanlega frekar í fámenni og verða meðvitaðri en áður um umhverfi sitt og samneyti við aðra. Þá gera þeir auknar kröfur til fyrirtækja um sýnileg viðbrögð við breyttum aðstæðum.
Mikilvægt er að ferðaþjónustufyrirtæki taki mið af nýjum óskum og þörfum ferðamanna með öryggi og gæði að leiðarljósi. Þjálfun starfsfólks og skýrar upplýsingar til viðskiptavina skipta sköpum við að koma til móts við breyttar venjur og þarfir.