Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt við hátíðlega athöfn á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu í gær. Höldur á Akureyri er Menntafyrirtæki ársins og Friðheimar í Bláskógabyggð er Menntasproti ársins. Menntaverðlaun atvinnulífsins eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði fræðslu- og menntamála. Höldur og Friðheimar hafa tekið þátt í tilraunaverkefninu Fræðsla í ferðaþjónustu með Hæfnisetrinu, SÍMEY á Akureyri og Fræðsluneti Suðurlands. Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, afhenti verðlaunin.
Menntadagurinn er árlegur viðburður en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar tók þátt í deginum og kynnti fyrir gestum á Menntatorgi nýútkominn fagorðalista ferðaþjónustunnar. Rúmlega 300 manns úr atvinnulífinu og skólasamfélaginu voru á staðnum.
Á mynd: Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Þórdís Bjarnadóttir, bókanastjóri og fyrsti skólastjóri Mannauðsskóla Hölds, Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds, Geir Kristinn Aðalsteinsson, mannauðsstjóri Hölds, Sigrún Árnadóttir verkefnastjóri hjá Höldi og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Á mynd: Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Rakel Theodórsdóttir, markaðs-og gæðastjóri Friðheima, Janis Schwenke veitinga-og móttökustjóri Friðheima, Helena Hermundardóttir og Knútur Ármann eigendur Friðheima og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Sjá nánar frétt á heimasíðu SAF.