Hvernig stendur íslensk ferðaþjónusta sig í öryggismálum og hvaða tækifæri felast í því að byggja upp í „öruggasta land í heimi” fyrir ferðamenn?

 Á þessum viðburði sameinum við raddir úr öllum hornum ferðaþjónustunnar og að utan til að horfa heildstætt á öryggi.

Við skoðum hvað gengur vel, hvar við getum gert betur og hvernig samvinna og samstillt átak getur eflt bæði öryggi og samkeppnishæfni.

Viðburðurinn fer fram á Hótel Kea, Akureyri, fimmtudaginn 9. apríl kl. 11:00–13:00, en jafnframt verður hægt að fylgjast með í beinu streymi á Facebook.

Dagskrá: 

  • Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu 
  • Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri hjá Samherja
  • Inga Björk Svavarsdóttir, sölustjóri hjá Saga Travel
  • Guðmundur Magnússon, skíðagæslufulltrúi Hlíðarfjalli
  • Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar

Fundarstjóri: Viggó Jónsson framkvæmdastjóri Drangeyjarferða og stjórnarformaður Markaðsstofu Norðurlands.

Létt hádegishressing í boði og pallborðsumræður stýrt af Ágústi Elvari Bjarnasyni, verkefnastjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar.

Frítt er á viðburðinn fyrir fyrirtæki og hagaðila í ferðaþjónustu.

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna

Skráning á viðburð

Hafðu samband