Hvernig undirbúa yngri kynslóðir ferðalög sín og hvaða væntingar hafa þær til upplifunar og þjónustu?
Ekki missa af næsta Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina Ferðalag með Z kynslóðinni og fer fram miðvikudaginn 19. nóvember kl. 11:00–12:00 í beinu streymi.
Á fundinum verður sjónum beint að ferðavenjum Y (Millennials) og Z kynslóðarinnar – allt frá fyrstu ferðahugmynd á Tiktok til síðustu stjörnugjafar á Google. Fjallað verður um áhrif samfélagsmiðla og gervigreindar á hegðun ferðamanna, væntingar um sjálfbærni og einstaka þjónustu, og hvernig fyrirtæki geta brugðist við með snjöllum lausnum og innblæstri.
Gestir fundarins að þessu sinni verða:
- Cathrine Frederiksen, Digido
- Anna Steinsen, Kvan
- Holly Keyser, Skoolbeans
- Rögnvaldur Már Helgason, Markaðsstofa Norðurlands
Fundarstjóri er Sölvi Guðmundsson, teymisstjóri markaða og menningar hjá Vestfjarðastofu
Vertu með – fáðu innsýn, verkfæri og innblástur
Viðburðinum verður streymt á Facebook.
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna
Skráning á viðburð

