Á Íslandi er nánast öll raforka unnin úr endurnýjanlegum auðlindum (vatn- og gufuafli) og því telja margir að það sé ekki þörf á því að spara rafmagn á Íslandi. Aukin orkunotkun kallar hins vegar á fleiri orkuver sem raska landsvæðum og hafa neikvæð áhrif á náttúru og dýralíf.
Þú getur sparað orku með því að:
- slökkva á ljósum
- loka gluggum
- draga fyrir glugga
- lækka á ofnum
- slökkva á tækjum
- taka tölvur og raftæki úr sambandi