Náttúruauðlindir jarðarinnar eru ekki óendanlegar og því mikilvægt að draga úr þörfinni á nýrri framleiðslu. Til þess þarf að huga að þremur þáttum: Í fyrsta lagi að reyna að draga úr magni úrgangs, í öðru lagi að endurnota það sem hægt er og að lokum endurvinna það sem hægt er að nýta meira.
Minnka úrgang
Hægt er að minnka úrgang t.d. með því að
- draga úr ónauðsynlegum innkaupum
- velja endurnýtanlegar vörur
- velja vörur án eða í sem minnstum umbúðum
- velja umhverfisvænar vörur
Endurnota
Endurnýting felur í sér að framlengja líftíma hluta, t.d.
- með því að gefa nothæfa hluti til félaga og samtaka
- með því að fara með nothæfa hluti í nytjamarkað
- með því að finna gömlum hlutum nýjan tilgang
Endurvinna
Endurvinnsla kallar á að úrgangur sé flokkaður.
- Aðferðir endurvinnslu eru ólíkar eftir sveitarfélögum
- Kynntu þér hvernig flokkun fer fram á þínu svæði.
- Mikilvægt er að hvetja gesti til flokkunar
Við val á umhverfisvænum vörum er hægt að styðjast við vottanir og merki á vörum og þjónustu. Kynntu þér upplýsingar um vottanir og merki á vef Umhverfisstofnunar.