Samfélagsleg áhrif ferðamennsku geta verið fjölþætt. Í neikvæðustu mynd sinni getur ferðaþjónusta skapað óvild heimamanna í garð ferðamanna, en ferðamennska getur líka aukið lífsgæði heimafólks.
Jákvæð áhrif
Aukin ánægja heimafólks, t.d. vegna
- aukins framboðs á fjölbreyttari þjónustu og afþreyingu
- sköpun (nýrra) starfa
- verndun menningarminja
Neikvæð áhrif
Aukin óánægja heimafólks, t.d. vegna
- álags á innviði sem bitnar á þjónustu fyrir heimafólk
- hækkun verðlags
- fjölmenni og troðnings fólks
Fyrirtæki í ferðaþjónustu geta stutt við samfélagið t.d. með því að:
- gefa vöru og þjónustu til nærsamfélagsins, t.d. bjóða í ferðir eða bjóða fram þekkingu starfsfólks.
- gefa notaðan búnað til skóla, félaga, hópa o.s.fv.
- styðja íþróttafélög, náttúruverndasamtök og/eða hjálparsamtök.
- versla við birgja í nærsamfélagi.