Um land allt starfa metnaðarfull ferðaþjónustufyrirtæki sem eru ávallt að leita nýrra leiða til að veita gestum sínum framúrskarandi þjónustu.
Til þess að efla samtalið um fagmennsku og gæði tóku Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar og áfangastaða- og markaðsstofur höndum saman og héldu sjö fundi um landið í mars og apríl 2023. Á fundunum var sjónum beint að leiðum til þess að auka hæfni, gæði og arðsemi í íslenskri ferðaþjónustu. Fyrirtæki og hagaðilar deildu reynslusögum og góðum ráðum. Alls voru um 300 manns sem sóttu fundina.
Á fundunum voru niðurstöður úr nýlegri könnun Samtaka ferðaþjónustunnar kynntar og þar kom m.a. fram að um 90% aðildarfyrirtækja telja sig hafa svigrúm til að auka gæði. Áfangastaða- og markaðsstofur starfa í öllum landshlutum og hafa það meginhlutverk að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta. Á fundunum kynntu fulltrúar þeirra þann stuðning og þjónustu sem stendur fyrirtækjum til boða.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur þróað ýmis verkfæri sem geta nýst stjórnendum og starfsfólki í ferðaþjónustu til að efla fagmennsku. Á fundunum fengu gestir t.d. kynningu á fræðsluefni fyrir nýtt starfsfólk í ferðaþjónustu og leiðbeiningar sem auðvelda ráðningar erlends starfsfólks. Jafnframt var greint frá nýju starfsnámi í ferðaþjónustu á framhaldsskólastigi sem var þróað í samvinnu atvinnulífs og menntakerfa.
Á fundunum deildu fjölbreytt fyrirtæki í ferðaþjónustu reynslu sinni af fræðslu og þjálfun starfsfólks. Fyrirtækin nýta ólíkar fræðsluaðferðir. Sum höfðu til að mynda góða reynslu af því að þjálfa nýliða með aðstoð reyndari starfsfólks, önnur höfðu fengið fræðsluaðila til að halda námskeið fyrir starfsfólkið sitt og nokkur höfðu valið að setja upp online skóla.
Hjá þessum fyrirtækjum er lögð áhersla á fagmennsku og góða þjónustu og fram kom að fræðsla og þjálfun starfsfólks er lykill að því, að veita reglulega og uppbyggilega endurgjöf, vera ávallt með skýr skilaboð til hvers sé ætlast af starfsfólki og tryggja starfsfólki umboð til athafna. Einnig er mikilvægt að starfsfólk hafi möguleika til starfsþróunar.
Starfsfólk sem veit til hvers er ætlast af þeim og hefur fengið viðeigandi þjálfun er öruggara í starfi og getur þar af leiðandi veitt betri þjónustu, sem skilar sér í aukinni ánægju bæði starfsfólks og gesta. Ljóst er að lausnamiðað og ánægt starfsfólk er fjársjóður sem skilar fyrirtækjum alltaf peningum í kassann. Rannsóknir sýna að fræðsla og þjálfun draga úr starfsmannaveltu og skapa fyrirtækjum orðspor sem eftirsóknarverður vinnustaður.
Munum að hafa fagmennsku og gæði að leiðarljósi – þá mun okkur farnast vel í gestgjafahlutverki okkar.
Grein birt á visir.is 25. maí 2023. Höfundar eru Valdís A. Steingrímsdóttir og Margrét Wendt, starfsfólk Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
Smelltu hér til að lesa greinina á visir.is