Nýliðaþjálfun er nýtt fræðslu- og stuðningsefni á vef Hæfniseturs ferðaþjónustunnar. Efninu er ætlað að auðvelda stjórnendum í ferðaþjónustu að taka á móti nýju starfsfólki.
Þar má finna gátlista, myndbönd, verkferla, námskeið og góð ráð.
Dæmi um fræðslu- og stuðningsefni í Nýliðaþjálfun:
Fyrir stjórnendur
- Fjármögnun
- Fræðslu- og þjálfunaráætlun
- Ráðgjöf og þjónusta
- Ráðningarferli erlends starfsfólks
- Seigluráð
Fyrir starfsfólk
- Menningarhæfni
- Þrif
- Snyrtimennska og framkoma
- Símsvörun
- Kvartanir
- 9-skrefa þjónustuferli
- Öryggisatriði
- Samskipti við gesti
- Matvælaöryggi
Sækja upptöku frá Menntamorgni ferðaþjónustunnar þar sem Nýliðaþjálfun var kynnt.
Efnið var unnið í samstarfi við Ferðamálastofu.