Hvernig stendur íslensk ferðaþjónusta sig í öryggismálum – og hvaða tækifæri felast í samstöðu og samstilltu átaki? Á þessum fundi deilum við reynslu, fáum innsýn frá ólíkum geirum og ræðum hvaða skref skila mestum árangri.
Markmiðið er skýrt: að efla sameiginlegt öryggi og móta örugga og eftirsóknarverða ferðaþjónustu sem laðar ferðamenn til Íslands.
Dagskrá
Fundarstjóri: Viggó Jónsson, framkvæmdastjóri Drangeyjarferða og stjórnarformaður Markaðsstofu Norðurlands
11:00–12:00 – Erindi
- Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu
- Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri hjá Samherja
- Inga Björk Svavarsdóttir
- Guðmundur Magnússon, skíðagæslufulltrúi Hlíðarfjalli
- Sólveig Nikulásdóttir, Hæfnisetur ferðaþjónustunnar
12:00–13:00 – Létt hádegishressing og pallborðsumræður
Stjórnandi pallborðs: Ágúst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri hjá SAF
Pallborð – þátttakendur (tilkynnt síðar)
Athugið: Breytingar á dagskrá kunna að verða.
Aðgangur: ÓKEYPIS og létt hádegishressing í boði fyrir gesti
Hverjir ættu að mæta?
Fulltrúar fyrirtækja í ferðaþjónustu, leiðsögumenn, öryggis- og gæðastjórar, sveitarfélög, innviða- og björgunaraðilar, mennta- og fræðsluaðilar – og allir sem vilja efla öryggi og fagmennsku í greininni.
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar á Akureyri er samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Markaðsstofa landshlutanna.

