Ársskýrsla Hæfnisetursins 2024

Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar fyrir starfsárið 2024 er komin út. Um er að ræða áttunda starfsár Hæfnisetursins sem má með sanni segja að hafi verið viðburðaríkt. Nýr samningur var gerður við atvinnuvegaráðuneytið sem tryggir áframhaldandi uppbyggingu Hæfnisetursins. Öflugar nýjar lausnir voru kynntar á árinu eins og tilraunaverkefnið Fræðsla til framtíðar, notendavænt sniðmát að starfsmannahandbók og fjölbreytt stuðningsefni fyrir íslenska tungu. Einnig var ánægjulegt að sjá námslínu í ferðaþjónustu verða að veruleika og raunfærnimat í tengslum við hana. Sýnileiki Hæfnisetursins jókst með þátttöku og samstarfi á fjölmörgum viðburðum sem og með stefnumiðaðri markaðssetningu. Fram undan eru áframhaldandi fjölbreytt verkefni sem lúta að hæfni og gæðum í takt við áherslur greinarinnar. Skýrsluna í heild sinni má lesa hér.

Hafðu samband