Ferðasýningin HITTUMST: Fjör og Framtíðarsýn í Hafnarhúsinu

Á fimmtudaginn síðastliðinn var Hafnarhúsið í Listasafni Reykjavíkur fullt af lífi og fjöri þegar fjölmenni sýnenda og gesta mætti á ferðasýninguna HITTUMST. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar var á staðnum með glæsilegan kynningarbás þar sem við áttum fjölbreytt og áhugaverð samtöl við gesti.

Við á Hæfnisetrinu kynntum nýjustu verkfærin okkar og áherslur sem snúa að hæfni og gæðum til framtíðar. Það var frábært að sjá hversu mikill áhugi var á því sem við erum að gera og við hlökkum til að halda áfram að þróa og bæta ferðaþjónustuna með ykkur öllum!

Hafðu samband