Aukin gæði í þjónustu og sölu: Árangurssaga

Síðasta haust fór fram fundur tengdum ferðaþjónustu á Reykjanesinu þar sem gæði þjónustu og upplifun viðskiptavina var meðal annars umræðuefnið. Á þeim fundi komst Blue Car Rental í samband við Ólínu hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Blue Car Rental hefur undanfarin ár lagt gríðarlega mikla áherslu á aukin gæði í þjónustu og sölu með það fyrir augum að auka upplifun viðskiptavina sinna. Eftir gott samtal skapaðist hugmynd að leið til þess að efla færni starfsfólks í framlínu í þjónustu og sölu hjá Blue Car Rental.

Vinnustofur í þjónustu og sölu

Ákveðið var að setja af stað vinnustofur og markþjálfun í samstarfi við ráðgjafann Kristján Aðalsteinsson hjá Krissi Coach.

Vinnustofurnar og þjálfunin með Kristjáni hófst á vetrarmánuðum 2023. Á sama tíma var fyrirtækið að taka upp nýtt sölubónuskerfi sem hannað var með það fyrir augum að hvetja starfsfólk til góðra verka en ekki síður efla liðsanda. Það varð strax ljóst að þjálfunin studdi mjög vel við þá innleiðingu. Árangur starfsfólks Blue Car Rental varð strax áþreifanlegur í kjölfarið en aukin samvinna og sala hafði í för með sér fjárhagslegan ávinning fyrir bæði starfsfólkið sjálft og fyrirtækið.

Á vinnustofunum var farið yfir ýmsa þætti er líta að þjónustu og sölu og leiðir ræddar sem styðja gætu starfsfólk til enn betri verka. Kristján lagði mikla áherslu á að innvinkla og leita álits starfsfólks, meðal annars þegar farið var yfir þjónustu- og söluaðferðir sem notaðar eru hjá Blue Car Rental.

Markþjálfun fyrir starfsfólk

Til viðbótar við vinnustofurnar var starfsfólki einnig boðið að sækja sér markþjálfun hjá Kristjáni.  Markþjálfun eru einstaklings samtöl þar sem starfsfólki var hjálpað að skerpa á markmiðum sínum, framtíðarsýn og koma auga á tækifæri í styrkleikum sínum til að efla sig enn frekar. Hluti starfsfólks hefur nýtt sér markþjálfunina áfram.

„Það er trú okkar sem fyrirtækis að vinnustofurnar og þjálfunin muni ekki einungis koma til með að nýtast starfsfólki heldur einnig fyrirtækinu sjálfu. Við lítum svo á að vel þjálfað starfsfólk sé í senn sjálfsöruggara og ánægðra og betur í stakk búið til að þjónusta viðskiptavini sína með þeim hætti að upplifun þeirra verði sem best“ sagði Sævar Sævarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Blue Car Rental að lokum.

Greinin í heild sinni birtist Víkurfréttum.

Hafðu samband