Menntamorgunn ferðaþjónustunnar var vel sóttur

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar var einstaklega vel sóttur í streymi enda erindin mjög áhugaverð. Þar fengu áhorfendur innsýn í þarfir Z kynslóðar á vinnustað, góð ráð fyrir ráðningarviðtöl og gerð ráðningasamninga, ásamt innsýn í hvernig ferðaþjónustufyrirtæki með 48 starfandi þjóðerni hefur stuðlað að fræðslu og jákvæðri menningu á vinnustað. 

Kíktu á upptökuna hér: Ráðningar og Z kynslóðin.

Næsti Menntamorgunn ferðaþjónustunnar 14. maí kl. 9

Aðeins er rúmur mánuður í að næsti Menntamorgunn ferðaþjónustunnar fari í loftið svo það er tilvalið að taka tímann frá.

Hvað vilt þú heyra um á næsta Menntamorgni? Svaraðu stuttri könnun til að koma þinni skoðun á framfæri.

Hafðu samband