Ferðaþjónusta, frá stefnu í aðgerðir

Ferðaþjónustan er ein af stærstu atvinnugreinum á Íslandi. Fjöldi ferðamanna fór úr tæplega 500 þúsund árið 2010 í rúmar 2,3 milljónir árið 2018 þegar mest var. Á þessu ári er reiknað með að fjöldi ferðamanna fari yfir 2 milljónir.

Í samvinnu stjórnvalda og ferðaþjónustunnar hefur verið mörkuð framtíðarsýn fyrir atvinnugreinina til ársins 2030. Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grundvelli efnahags-, umhverfis- og samfélagslegs jafnvægis.

En stefnu fylgja aðgerðir og því skipaði ferðamálaráðherra sjö starfshópa sem falið var að vinna tillögur að aðgerðum inn í aðgerðaáætlun fyrir ferðamálastefnu til 2030. Gert er ráð fyrir að stefnan og aðgerðaáætlunin verði lögð fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar á vorþingi 2024.

Nú eru fyrstu tillögur aðgerða frá starfshópunum til umsagnar í samráðsgátt. Þegar tillögur starfshópanna eru rýndar koma að mínu áliti fram sameiginlegar áherslur. Þær eru sjálfbærni, rannsóknir, gögn og greiningar, menntun og gæði, álagsstýring, leyfismál og eftirlit.

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur verið þátttakandi í mótun fyrstu tillagna að aðgerðum varðandi hæfni og gæði. Hæfnisetrið starfar á forsendum ferðaþjónustunnar við að efla hæfni og gæði í atvinnugreininni.

Frestur til þess að skrifa umsögn í samráðsgátt er 23.nóvember 2023. Í framhaldi verður tekið mið af ábendingum sem koma fram við mótun lokatillagna og þær birtar í samráðsgátt.

Mikilvægt er að þau sem standa næst atvinnugreininni skoði þær tillögur sem fram eru komnar og móti sér skoðun á þeim.

Til að varpa fram ljósi á þær tillögur sem nú eru til umsagnar boða Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Samtök ferðaþjónustunnar til Menntamorguns í streymi mánudaginn 20. nóvember kl. 09:00 – 10:00.

Á fundinum verður kynning á megináherslum sem felast í tillögum hópanna og síðan verður farið dýpra í tillögur varðandi hæfni og gæði.

Fundurinn er öllum opinn og nánari upplýsingar um dagskrá má nálgast hér.

Og í lokinn, það er einfalt að setja inn umsögn í samráðsgátt og viðmótið þægilegt. Þær þurfa ekki að vera umfangsmiklar og formlegar, þær geta snert málið í heild sinni eða einstök atriði og geta verið frá einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum, samtökum eða hverjum sem er sem vill láta rödd sína heyrast.

Grein birt á visir.is 17. nóvember 2023. Höfundur er Haukur Harðarson, verkefnastjóri Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.

Smelltu hér til að lesa greinina á visir.is

Hafðu samband