Menntamorgunn: Samskipti og líðan á vinnustað

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF boða til Menntamorguns ferðaþjónustunnar þriðjudaginn 3. október nk. kl. 11.30 – 12.15. Á fundinum verður sjónum beint að samskiptum og líðan á vinnustað með áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni.

Hægt verður að fylgjast með í streymi á facebook viðburðinum.

Dagskrá:

EKKO Verkefnið: Verkfæri og fræðsluefni
Sara Hlín Hálfdanardóttir, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu og verkefnisstjóri EKKO verkefnisins, og
Fríða María Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu

Hvernig er heilsan á þínum vinnustað? Félagslegt öryggi
Íris Helga Gígju Baldursdóttir, sérfræðingur í vinnuvernd og markþjálfi hjá Auðnast

Stefnumörkun í mannauðsmálum lykilþáttur í bættri vinnustaðamenningu
Jónína Magnúsdóttir, mannauðsstjóri Blue Car Rental

Ábyrgð stjórnandans í erfiðum samskiptum
Katrín Kristjánsdóttir, sálfræðingur hjá Líf og Sál, sálfræði-og ráðgjafastofu

Fundarstjóri er Águst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri hjá SAF.

Hafðu samband