Fræðslumiðstöð atvinnulífsins auglýsir eftir hugmyndaríkum liðsmanni til starfa.
Fræðslumiðstöðin vinnur meðal annars eftir samningi við ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðuneytið um eflingu hæfni og gæða í ferðaþjónustu í gegnum Hæfnisetur ferðaþjónustunnar.
Verkefni Hæfnisetursins eru meðal annars að greina fræðsluþarfir, móta leiðir um aukna samvinnu fyrirtækja um fræðslu og koma henni á framfæri til fræðsluaðila, sjá nánar á haefni.is.
Helstu hæfnikröfur og reynsla sem nýtist:
- Menntun og/eða rík starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi í ferðaþjónustu er kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af fræðslu-, markaðs- og kynningarmálum
- Sjálfstæð vinnubrögð og hugmyndaauðgi
- Rit- og samskiptafærni á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sirra@frae.is eða í sími 599 1400. Umsóknarfrestur er til 19. janúar 2022.
Sótt er um á alfred.is