Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja, boða til súpufundar 14. júní nk. í húsnæði Þekkingarseturs Vestmannaeyja, Ægisgötu 2. Umfjöllunarefni fundarins er svæðisbundið samstarf fyrirtækja og móttaka nýs starfsfólks auk þess sem kynnt verða verkfæri sem standa fyrirtækjum í ferðaþjónustu til boða þeim að kostnaðarlausu,
Allir velkomnir og boðið verður upp á súpu og brauð.
DAGSKRÁ
11.45 – 11.50 Fundarstjóri
Valgerður Guðjónsdóttir, forstöðumaður Visku
11.50 – 12.15 Verkfæri í boði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
Jóna Valborg Árnadóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
12.15 – 12.30 Velkomin til starfa – móttaka nýs starfsfólks
Bryndís Skarphéðinsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
12.30 – 12.45 Fræðsla til framtíðar – Sterkari saman
Valdís Steingrímsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
12.45 – 13.00 Samtal við ferðaþjónustuna
Ef þú kemst ekki á fundinn þá er starfsfólk Hæfnisetursins tilbúið að koma með stutta kynningu til ykkar eftir hádegið á mánudeginum. Sendið okkur endilega póst á haefni@haefni.is og óskið eftir tíma með okkur.