Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru haldnir reglulega af Hæfnisetri ferðaþjónustunnar í samstarfi við SAF til að koma á framfæri því sem er efst á baugi varðandi hæfni og gæði ferðaþjónustunnar á Íslandi.
Á síðasta Menntarmorgni ferðaþjónustunnar sem fram fór 14. desember sl. kynnti Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, vísbendingar um breytingar á ferðatilhögun og hegðun ferðamanna, og stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja miðluðu af reynslu sinni. Rúmlega 100 þátttakendur fylgdust með beinni útsendingu og 91% svarenda í könnun sem send var út eftir viðburðinn sögðu efni hans hafa verið mjög eða frekar gagnlegt.
Í könnuninni voru þátttakendur jaframt spurðir að því hvaða efni þeir vildu sjá tekið til umfjöllunar á næstu Menntamorgnum ferðaþjónustunnar.
Eftirfarandi hugmyndir komu fram:
– Góð ráð til stjórnenda varðandi uppbyggingu liðsheildar og hvernig má byggja upp traust á ný
– Lærdómsmenning á netinu
– Þjálfun
– Reynslusögur og viðhorf úr ferðaþjónustunni
– Meira um framtíðarspekulationir fyrir 2021
– Jákvæð sálfræði, hvernig má byggja sig upp andlega
– Sjálfbærni og gæðamál eftir Covid
– Framtíðarhorfur MICE markaðarins
– Lausnir í snertilausum viðskiptum
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar þakkar allar góðar hugmyndir. Hægt er að hafa samband við Hæfnisetrið á hæfni@hæfni.is.