Menntamorgunn í Húsi atvinnulífsins
27. febrúar kl. 08.30 – 09.30
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF boða til morgunverðarfundar í fundaröðinni Okkar bestu hliðar – menntamorgnar ferðaþjónustunnar.
Markmiðið með fundinum er að vekja athygli á hlut og hlutskipti erlends starfsfólks í íslenskri ferðaþjónustu. Mikilvægi þessa starfsfólks og hvernig því farnast.
Allir velkomnir en skrá þarf þátttöku.
Dagskrá
Innflytjendur í ferðaþjónustu – áskoranir og auðlegð
Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir
Þróun í fjölda erlendra starfsmanna
Vilborg Helga Júlíusdóttir, hagfræðingur SAF
Viska – raunfærnimat fyrir innflytjendur í íslensku atvinnulífi
Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir, náms-og starfsráðgjafi
Það nýjasta í fagorðalista ferðaþjónustunnar
Jóna Valborg Árnadóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
Viðtalsmyndband – Hvað segir starfsfólkið sjálft?
-Umræður-
Fundarstjóri er María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF
Hægt verður að fylgjast með streymi frá fundinum á facebook-síðum Samtaka ferðaþjónustunnar og Hæfnisetursins.