Íslensk málnefnd veitti í gær Hæfnisetri ferðaþjónustunnar og Samtökum ferðaþjónustunnar viðurkenningu fyrir kennsluvefinn „Orðin okkar á íslensku“ sem ætlað er að auðvelda erlendu starfsfólki íslenskan orðaforða og auðvelda samskipti á vinnustað.
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, og María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stjórnar Hæfnisetursins, veittu viðurkenningunni viðtöku.
Hér má nálgast fagorðalistann.
![](https://haefni.is/wp-content/uploads/2019/09/image-1-1024x705.png)