Mánudaginn 20. maí kl. 10:00-13:00 fer fram kynning á skýrslu sem Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur unnið í samstarfi við atvinnulíf og menntakerfi. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, og mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, ávarpa fundinn. Skýrslan, Hæfni er grunnur að gæðum, er innlegg atvinnulífsins í mótun mennta- og hæfnistefnu fyrir ferðaþjónustu. Að loknum kynningum á skýrslunni gefst gestum tækifæri til þess að ræða efni skýrslunnar og koma ábendingum og athugasemdum á framfæri. Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Hyl.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér
DAGSKRÁ
10:00 Velkomin
María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stjórnar Hæfnisetursins
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
10:05 Ávarp
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
10:15 Ávarp
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
10:25 Kynning á niðurstöðum skýrslunnar
Haukur Harðarson, verkefnastjóri Hæfniseturs ferðaþjónustunnar
10:50 Þrepaskipt
Eyrún Valsdóttir, formaður stjórnar FA
11:00 Hagnýtt
Jakob Jakobsson, framkvæmdastjóri Jómfrúarinnar
11:10 Aðgengilegt
Ómar Kristinsson, sviðsstjóri VMA
11:20 Fræðsla í ferðaþjónustu – stjórnendur fyrirtækja segja frá reynslu sinni
11:30 Hópavinna
12:05 Niðurstöður hópavinnu
12:15 Léttur hádegisverður
Fundarstjóri: Sveinn Aðalsteinsson
Hér má nálgast skýrsluna.