Hæfnisetur ferðaþjónustunnar bíður ferðaþjónustufyrirtækjum að taka þátt í verkefni til að auka hæfni starfsmanna í greininni. Hæfnisetrið er samstarfsverkefni hagsmunaaðila í ferðþjónustunni til að auka hæfni starfsmanna ferðaþjónustunnar og er í samvinnu um fræðsluverkefni við símenntunarmiðstöðvar á landsvísu. Hlutverk Hæfniseturs ferðaþjónustunnar er að starfa á forsendum ferðaþjónustunnar til að auka hæfni starfsfólks og þar með auka gæði, fagmennsku, starfsánægju og arðsemi greinarinnar.
Samkvæmt könnun Ferðamálastofu frá árinu 2014 töldu um 40% erlendra ferðamanna að gæði ferðaþjónustu þyrfti að bæta. Við í Hæfnisetrinu teljum að ein mikilvægasta leiðin til þess sé að auka hæfni starfsfólks í greininni og það gerum við með markvissri þjálfun og fræðslu í samstarfi við fræðsluaðila. Við leggjum áherslu á samvinnu við greinina, aðila vinnumarkaðarins, fræðsluaðila og stjórnvöld við að aðstoða fyrirtæki að koma á markvissri fræðslu í fyrirtækjum, þróa leiðtogafræðslu og námslotur fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu, þrepaskipt starfsnám og raunfærnimat í starfsgreinum ferðaþjónustunnar
Hæfnisetrið er í samstarfi við símenntunarmiðstöðvarnar sem sjá um framkvæmd verkefnisins. Ferðaþjónustufyrirtækjum er boðið að taka þátt í þessu tilraunaverkefni og verða símenntunarmiðstöðvarnar umsjónaraðilar fræðslunnar, sem verður sérsniðinn að hverju fyrirtæki. Símenntunarmiðstöðvarnar hafa á að skipa einvala liði sérfræðinga með mikla reynslu af þjálfun og fræðslu. Hæfnisetrið kemur að verkefninu með ráðgjöf og öðrum stuðningi.
Þörfin fyrir þjálfun og fræðslu í fyrirtækjum verður metin og greind og í kjölfarið útbúin fræðsluáætlun eftir þörfum og óskum hvers fyrirtækis og í samráði við stjórnendur og starfsmenn. Símenntunarmiðstöðvarnar sjá um að koma áætluninni í framkvæmd í nánu samstarfi við fyrirtækið og á forsendum þess.
Freðaþjónustufyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér þetta verkefni nánar geta sent póst á haefni@haefni.is eða hringt í síma 599 1400
Fjárfesting í hæfni starfsfólks með fræðslu og þjálfun er grundvallaratriði í sókn íslensku ferðaþjónustunnar til að auka gæði, starfsánægju, framleiðni og arðsemi. Fjárfesting sem skilar sér fljótt