Fréttir

Fréttir

Síur

Gervigreindin vinnur á meðan þú drekkur kaffið

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar 1. des

Hvað ef þú gætir sparað þér nokkra klukkutíma í hverri viku, án þess að ráða nýtt fólk eða kaupa dýran hugbúnað? ⏰Á næsta Menntamorgni sýnum við í verki hvernig gervigreind getur létt á daglegum rekstri í ferðaþjónustu. Þetta er hagnýtur fundur með sýnikennslu og þú getur fylgst með hvar sem þú ert, þriðjudaginn 1. desember kl. 11:00–12:00 á Zoom.

Liðsauki til Hæfnisetursins

Íva Sigrún Björnsdóttir hóf störf hjá Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins nú í ágúst og verður í 50% starfshlutfalli hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar.

Ársskýrsla Hæfnisetursins 2025 komin út

Ársskýrsla 2025

Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar fyrir starfsárið 2025 er nú komin út. Um var að ræða viðburðaríkt ár þar sem áfram var unnið markvisst að uppbyggingu lausna sem styðja við hæfni, fagmennsku og gæði í íslenskri ferðaþjónustu.

Dagur tileinkaður bættu aðgengi

Global Accessibility Awareness Day

Í dag er haldið upp á Global Accessibility Awareness Day. Dagurinn snýst í grunninn um að minna okkur á að aðgengi er ekki sérlausn fyrir fáa og snýst um þátttöku, virðingu, öryggi og sjálfstæði fólks. Um að öll geti upplifað heiminn á eigin forsendum. Í dag lifa yfir einn milljarður manna með einhvers konar fötlun eða skerðingu og samt er ferðalag enn of oft fullt af hindrunum sem flest okkar taka ekki eftir.

PersónuverndVafrakökur