Um okkur

Lausnir sem styðja fólk og fyrirtæki í ferðaþjónustu

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar styður fyrirtæki og starfsfólk við að efla hæfni, styrkja mannauð og auka fagmennsku í greininni. Við þróum hagnýtar lausnir sem auðvelda fyrirtækjum að byggja upp öflugt starfsfólk, efla fræðslu og bregðast við síbreytilegum þörfum ferðaþjónustunnar. Þjónusta Hæfnisetursins er fyrirtækjum og starfsfólki að kostnaðarlausu

Hvað gerum við?

  • Við þróum fræðslu- og stuðningsefni fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu í samstarfi greinina og aðra hagaðila
  • Við veitum ráðgjöf og aðstoð til fyrirtækja við að koma á fræðslu og þjálfun
  • Við greinum fræðsluþarfir, miðlum þeim til fræðsluaðila og leiðum samtal um þróun náms í ferðaþjónustu
  • Við vinnum náið með fyrirtækjum, menntastofnunum, samtökum og stjórnvöldum að því að efla hæfni og gæði í íslenskri ferðaþjónustu.
  • Við vinnum samkvæmt þjónustusamningi við atvinnuvegaráðuneyti (áður Menningar-og viðskiptaráðuneytið)

Okkar hlutverk

Að efla hæfni og fagmennsku stjórnenda og starfsfólks í ferðaþjónustu og stuðla þannig að auknum gæðum, jákvæðri ímynd og samkeppnishæfni greinarinnar.  

Framtíðarsýn

Við viljum sjá ferðaþjónustu þar sem:

  • Hæfniuppbygging þróast í takt við þarfir atvinnugreinarinnar og samfélagsins
  • Starfsfólk hefur aðgang að fjölbreyttum tækifærum til náms og starfsþróunar
  • Fyrirtæki hafa aðgang að hagnýtum lausnum sem styðja við öflugan mannauð
  • Fagmennska, gæði og þekking er meðal helstu styrkleika
     
Fyrirtæki tóku Ferðapúlsinn 2025
88
Notendur á stafrænu vinnusvæði Hæfnisetursins 2025
187
Fjöldi gesta á vinnustofum Hæfnisetursins 2025
148

Starfsfólk

  • Haukur Harðarson

    Email

    Verkefnastjóri

  • Hildur Betty Kristjánsdóttir

    Email

    Framkvæmdastjóri

  • Sólveig Nikulásdóttir

    Email

    Sérfræðingur

  • Sigríður Pjetursdóttir

    Email

    Sérfræðingur

  • Iva Sigrún Björnsdóttir

    Email

    Sérfræðingur

Stýrihópur

Í stýrihópi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar sitja fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands Ferðamálastofu og atvinnuvegaráðuneyti. Mynd: Stýrihópur Hæfniseturs ferðaþjónustunnar á fundi með Lilju Alfreðsdóttur ferðamálaráðherra í janúar 2023

Formaður

Meðstjórnendur

  • Aleksandra Leonardsdóttir

    Fræðsla og inngilding hjá ASÍ

  • Sunna Þórðardóttir

    Sérfræðingur hjá atvinnuvegaráðuneytinu

Jóhannes Þór Skúlason

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar

  • Helen Hannesdóttir

    Forstöðumaður þróunar-og þjónustusviðs Ferðamálastofu

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?